Benni býður í Opel-veislu

Bílabúð Benna býður til Opel-veislu í Reykjavík og í Reykjanesbæ.
Bílabúð Benna býður til Opel-veislu í Reykjavík og í Reykjanesbæ.

Bílabúð Benna er 40 ára og fagnar afmælinu með margs konar viðburðum á árinu. Nú slær fyrirtækið upp Opel-veislu í sölustöðum sínum í Reykjavík og í Reykjanesbæ.

Á meðan Opel-veislan stendur yfir fylgir veglegur afmælispakki með kaupum á nýjum Opel.

Í afmælispakkanum eru Toyo harðskeljadekk, 200 lítra eldsneytisinneign og gullþvottur hjá Löðri í fimm skipti.

Bílabúð Benna hóf sölu á Opel bifreiðum síðasta haust og býður nú upp á breiða línu af fólksbílum sem og atvinnubílum, en þeir bættust í bílaflóru fyrirtækisins nú fyrir skemmstu. Af helstu fólksbílategundum má nefna t.d. nýju útgáfuna af Opel Corsa, sem kynnt var í vor, jepplinginn Mokka og lúxusbifreiðina Insignia. Þá er Opel Astra alltaf vinsæll og hefur fengið mikið lof bílasérfræðinga.

Nýlega var Opel Corsa kosinn „bestu bílakaupin í Evrópu“ í sínum stærðarflokki og Mokka var valinn 4X4 bíll ársins af neytendum í Þýskalandi. „Opel kemur sterkur inn hjá Íslendingum og segja má að landinn sé að uppgötva Opel gæðin uppá nýtt,“ segir Benedikt Eyjólfsson hjá Bílabúð Benna. „Opel er í mikilli sókn á öllum mörkuðum og við eigum stórafmæli þannig að við nýtum tilefnið og bjóðum fólki, sem er í bílahugleiðingum, til okkar í Opel-veislu.“ segir Benedikt.

mbl.is