Toyota og Lexus með sýningu

Toyota og Lexus efndu til sýningar í Kauptúni laugardaginn 14. nóvember sl. Lexus sýndi þar nokkrar myndarlegar sportútfærslur á meðan Toyota hélt hátíðlega Vetrarfönn.

Lexus sýndi sportútfærslur af NX 300h jeppanum, ásamt fólksbílunum IS 300h og CT 200h. Þar mátti glöggt sjá nýjustu áherslur hjá hönnunarteymi Lexus sem vakið hafa mikla athygli að undanförnu fyrir skarpar og ákveðnar línur.

Hjá Toyota var svo aftur á móti boðið upp á Vetrarfönn, árlega stórsýningu í upphafi vetrar. Vetrardekk fylgdu af því tilefni öllum seldum bílum á sýningunni auk þess sem glæsilegir aukahlutapakkar fylgdu völdum bílum.

Eins og sjá má var gestagangur í Kauptúninu enda margt að sjá og upplifa hjá Lexus og Toyota.

jonagnar@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: