Ford stórsýning á laugardag í Brimborg

Úrval Ford-bíla verður til sýnis hjá Brimborg.
Úrval Ford-bíla verður til sýnis hjá Brimborg.

Ford stórsýning verður haldin í Brimborg næstkomandi laugardag, 7. maí, frá klukkan 12 til 16. Verður hún haldin í sýningarsal Ford að Bíldshöfða 6 og hjá Brimborg Akureyri að Tryggvabraut 5.

Tilefni sýningarinnar er að nú er SYNC II samskiptakerfi með Bluetooth og neyðarhringingu, 8 tommu snertiskjár og íslenskt leiðsögukerfi einnig hluti af ríkulegum staðalbúnaði.

„Ford bílar eru vandaðir, glæsilegir og sparneytir. Úrvalið er jafnframt einstaklega breitt. Allt frá smærri fólksbílum upp í stóra pallbíla. Þess má geta að Ford býr yfir besta úrvali landsins af 7 manna fjölskyldubílum,“ segir í tilkynningu frá Brimborg vegna sýningarinnar.

Gestum sýningarinnar stendur til boða reynsluakstur til að upplifa beint í æð aksturseiginleika Fordbílanna.

mbl.is