Vann 300.000 króna gjafabréf

Friðrik Arnar Helgason (t.v.) hlaut aðalvinninginn.
Friðrik Arnar Helgason (t.v.) hlaut aðalvinninginn. mbl

Dregið hefur verið í Ferðafjörsleik Ford hjá Brimborg og þrír heppnir vinningshafar eru nú á leið á vit ævintýranna.

Friðrik Arnar Helgason hlaut aðalvinninginn, sem var 300.000 kr. gjafabréf frá WOW air.  Að auki voru dregin út þau Þorvaldur Steinsson og Sigurdís Reynisdóttir sem unnu aukavinninga að verðmæti 100.000 kr. hvort. 

Allir þeir sem reynsluóku nýjum Ford hjá Brimborg í mars og apríl fóru í pott sem nöfn hinna heppnu voru svo dregin úr.

mbl.is