Peugeot til Brimborgar

Brimborg trekur við umboði fyrir Peugeotbíla á Íslandi.
Brimborg trekur við umboði fyrir Peugeotbíla á Íslandi.

Opnaður verður nýr sýningarsalur fyrir Peugeot í húsakynnum Brimborgar að Bíldshöfða 8 á morgun. Fyrirtækið hefur þar með formlega sölu á Peugeotbílum á Íslandi, en hingað til hefur umboðið á Íslandi verið í höndum danska fyrirtækisins K.W. Bruun frá 2005.

K.W.Bruun sem hefur haft innflutningssamninginn fyrir Ísland en bílaumboðið Bernhard verið söluaðili danska fyrirtækið frá 2005. Er samningur Bernhard óbreyttur til 31. ágúst 2017, samkvæmt upplýsingum frá Brimborg.

Í kjölfar viðamikillar endurskipulagningar franska bílrisans PSA Group, sem er eigandi bílamerkjanna Peugeot og Citroën, þá hefur hann hafið ferli sem miðar að því að setja undir einn hatt innflutning vörumerkjanna tveggja í hverju landi fyrir sig. Þessi ákvörðun PSA hefur þau áhrif að Brimborg tekur yfir ábyrgð á innflutningi Peugeot bíla og varahluta vegna Peugeot til Íslands af hinu danska fyrirtæki.

„Brimborg mun bjóða alla bílalínu Peugeot með meiri búnaði en áður og á einstaklega hagstæðu verði,“ að sögn Brimborgar. Í tilefni opnunar verða góð opnunartilboð í gangi á nýjum Peugeot bílum.

heimasíða Peugeot á Íslandi er komin í loftið. Lénið er www.peugeotisland.is. Við hönnun síðunnar var lögð áhersla á að skapa notendavæna síðu sem sýnir á skýran hátt úrval Peugeot bíla og þá þjónustu sem Peugeot á Íslandi hefur upp á að bjóða.
 
Lægra varahlutaverð og öflug verkstæðisþjónusta

Brimborg hefur þegar hafið innflutning á varahlutum í Peugeot bíla og segist fyrirtækið hafa náð að lækka varahlutaverð með hagstæðum innkaupum beint frá framleiðanda. Verkstæðisþjónusta og ábyrgðarviðgerðir fyrir alla Peugeot bíla, hvort sem þeir eru fluttir inn af Brimborg eða öðrum, er einnig í boði hjá Brimborg.
 
Meira úrval, lægra bílverð

„Mikil hagræðing mun verða af þessum breytingum þar sem Brimborg mun flytja inn bæði bíla og varahluti beint af framleiðanda eins og verið hefur með Citroën. Hagræðingin mun einnig ná til Citroën þar sem aukið flutningsmagn fyrir bíla og varahluti mun lækka kostnað og ýmis önnur hagræðing mun eiga sér stað. Viðskiptavinir munu í kjölfar þessara breytinga sjá meira úrval Peugeot bíla í boði á Íslandi, lægra bílverð og lægra varahlutaverð,“ segir Brimborg.

PSA samsteypan, Peugeot, Citroën og lúxusmerkið DS,  er annar stærsti bílaframleiðandi í Evrópu og seldi um 3 milljónir bíla á heimsvísu árið 2015. Reiknar Brimborg með að kynna DS-bílana til sögunnar síðar.


 

mbl.is