Volvo V40 Cross Country frumsýndur

Volvo V40 Cross Country.
Volvo V40 Cross Country.

Brimborg frumsýnir Volvo V40 Cross Country næstkomandi laugardag, 24. september, milli klukkan 12 og 16 í sýningarsal Volvo að Bíldshöfða 6.

Í tilkynningu um frumsýninguna segir að Volvo V40 Cross Country sé aflmikill og veghæðin  mikil. Útlitið sé orðið enn einbeittara með nýju grilli, nýjum Þórshamars díóðuframljósum og 17“ Keid álfelgum. Volvo V40 Cross Country kostar frá 4.590.000 kr.

Á staðnum verða einnig Volvo V40 R-Design og Volvo S60 Polestar. Volvo S60 Polestar er með 2,0 lítra 367 hestafla bensínvél með túrbínu og forþjöppu. Togkrafturinn er 470 Nm. Sjálfskiptingin er 8 gíra. Hann býr yfir Borg Warner fjórhjóladrifi. Úr kyrrstöðu nær hann 100 km hraða á 4,7 sekúndum og er 17,2 sekúndur í 200 km hraða. Verð þessa bíls er 9.490.000 kr.

mbl.is