Má nota báða fætur á sjálfskiptum?

„Við verðum að muna að það er fullt af fólki …
„Við verðum að muna að það er fullt af fólki í umferðinni sem ræður ekki við mikið meira en að koma bílnum á milli staða,“ segir Guðbrandur Bogason og varar við því að fólk reyni að hafa vinstri fótinn á bremsunni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Mjög skiptar skoðanir eru um hvernig á að nota fæturna þegar sjálfskiptum bíl er ekið. Þeim sem læra á sjálfskiptan bíl í ökuskóla er kennt að nota hægri fótinn bæði til að stjórna bæði bremsu og bensíngjöf en hvíla vinstri fótinn.

Margir vilja meina að það sé óhætt – og jafnvel betra – að nota báða fæturna, með vinstri fótinn á bremsunni, en aðrir segja að þeir sem bremsi með vinstri séu stórhættulegir í umferðinni.

Með logandi bremsuljós

Guðbrandur Bogason er í hópi reyndustu ökukennara landsins og segir hann að með vinstri fótinn á bremsunni sé hætt við að fólk sé að virkja bremsurnar án þess endilega að gera sér grein fyrir því. „Þetta lætur bíllinn vinna á móti sjálfum sér og framkallar bæði slit og hita. Á meðan er verið að senda öðrum ökumönnum ruglandi skilaboð enda loga bremsuljósin þó að ökumaður ætli sér ekki að hægja á bílnum.“

Að sögn Guðbrands gæti fimur og vanur ökumaður náð valdi á því að nota báða fæturna í akstri sjálfskipts bíls en ekki er hægt að mæla með því að hinn almenni ökumaður reyni þessa tækni. „Við verðum að muna að það er fullt af fólki í umferðinni sem ræður ekki við mikið meira en að koma bílnum á milli staða,“ segir hann. „Það gæti hugsast að góður ökumaður með næma tilfinningu fyrir ökutækinu gæti nýtt sér vinstri fótar bremsun í einhverjum tilvikum til að hafa betri stjórn á bílnum, en það væri stórhættuleg þróun ef ætti að reka áróður fyrir því að hinn almenni ökumaður færi að gera þetta.“

Fótstigaruglingur

Sterkustu öryggisrökin fyrir því að nota aðeins annan fótinn eru að þannig sé síður hætta á að ökumaður stígi á bremsu og bensíngjöf samtímis þegar hann hemlar. Á móti segja fylgjendur vinstri fótar notkunar að með því að þurfa ekki að færa hægri fótinn á milli fótstiga megi hemla fyrr, enda taki brot úr sekúndu að flytja fótinn á milli fótstiga og geti þessi stutta töf lengt hemlunarvegalengdina.

Einnig koma vélrænir þættir við sögu. Bremsufótstigið er jafnan tengt við bremsukút sem notar lofttæmi til að magna upp kraftinn sem kemur á bremsukerfið þegar stigið er á fótstigið. Ef það gerist að bremsufóturinn sígur smám saman niður getur saxast á þann hjálparkraft sem lofttæmið gefur og þegar loks þarf að hemla fyrir alvöru verður ökumaðurinn að spyrna með mun meiri krafti en ella.

Betri beygjur

Daníel Sigurðsson rallkappi hefur vinstri fótinn á bremsunni þegar hann keppir, eins og raunar flestir akstursíþróttamenn. „Þorri flinkustu ökuþóra heims bremsar með vinstri fætinum. Með því sparast sá tími sem annars færi í að færa hægri fótinn á milli fótstiga en með þessari tækni er líka hægt að auka rásfestu í gegnum beygjur. Útkoman er meiri aksturshraði og betri tímar.“

Þeir sem eru forvitnir um tæknina sem Daníel lýsir geta fundið kennslumyndbönd á YouTube með því að leita að „left foot braking“. Þá birtist fjöldi myndbanda sem sýnir hvernig góð stjórn á bremsunni með vinstri fæti getur gagnast jafnt í rallakstri, á hefðbundinni kappakstursbraut og í utanvegaakstri.

Erfitt að temja sér

Daníel er ríkjandi Íslandsmeistari í ralli og segir skiljanlegt að þeir sem séu að byrja að aka og aðrir sem eiga fullt í fangi með aksturinn velji að nota aðeins annan fótinn til að stýra fótstigunum. „Það getur líka verið erfitt að breyta til eftir að fólk hefur vanið sig á ákveðinn akstursstíl í mörg ár og áratugi og ekki reynandi fyrir alla.“

Að mati Daníels gefur það mun betri stjórn á bílnum að bremsa með vinstra fótstiginu og getur t.d. gagnast við akstur í bleytu og hálku eða á malarvegum. „Og munurinn á viðbragðstíma þýðir að hemlunarvegalengd gæti styst um tugi metra.“ ai@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: