Aldrei seldir fleiri notaðir bílar

Frod Fiesta
Frod Fiesta

Aldrei hafa verið seldir fleiri notaðir bílar í Bretlandi og á nýliðnu ári. Samtals voru þeir 8,2 milljónir og nam aukningin frá árinu 2015 samtals 7,3 prósentum.

Og þrátt fyrir útblásturshneykslið sem kom við kaunin á Volkswagen dró ekki úr sölu notaðra VW-bíla. Þvert á móti, hún jókst um 11% milli ára.  Aukningin er að stórum hluta rakin til aukinnar jeppasölu og vaxandi eftirspurn eftir notuðum dísilbílum.

Hlutfallslega flestir notuðu bílanna voru skráðir í suðausturhéruðum Englands. Nýskráningar nýrra bíla hafa sömuleiðis aldrei verið fleiri en í fyrra, eða 2,7 milljónir.

Hvítt kann að vera vinsælasti litur nýrra bíla um þessar mundir en sá litur var ekki í efsta sæti meðal notaðra bíla.

Tíu vinsælustu módelin í viðskiptum með notaða bíla í Bretlandi 2016 voru sem hér segir:

381.519  Ford Fiesta
374.590  Ford Focus
352.899  Vauxhall Corsa
298.540  Vauxhall Astra
262.623  VW Golf
211.656  BMW 3-serían
178.684  Renault Clio
154.855  VW Polo
143.066  Mini
126.176  Peugeot

mbl.is