BL kynnir rafbílinn Renault ZOE

Renault Zoe dregur 400 km á fullri hleðslu.
Renault Zoe dregur 400 km á fullri hleðslu.

Bifreiðaumboðið BL kynnir á morgun, laugardag, milli kl. 12 og 16, nýjan kost í flóru rafbíla hjá umboðinu. Nú bætist Renault Zoe í flotann en Zoe er fjögurra manna bíll með allt að 400 km drægi.

Zoe var jafnframt einn mest seldi rafbíllinn í Evrópu á síðasta ári og hann er lang söluhæsti rafbíllinn í heimalandinu, Frakklandi.

Rafbíllinn Zog er ekki alveg nýr af nálinni frá Renault en þetta er í fyrsta sinn sem hann er kynntur hér á landi enda ákvað BL að bíða með kynninguna þar til Renault markaðssetti bílinn með alveg nýrri og langdrægari rafhlöðu sem hentar betur íslenskum aðstæðum.

„Uppgefið drægi framleiðanda er um 400 km samkvæmt stöðluðum mæliaðferðum NEDC (New Europeean Driving Cycle). Ætla má að við íslenskar aðstæður sé meðaldrægni á hverri hleðslu nær 300 km sem er með því besta sem gerist í þessum stærðarflokki,“ segir í tilkynningu.

Heimahleðslustöð í tilefni frumsýningar

Hægt er að hlaða Zoe á öllum hraðhleðslustöðvum Orku Náttúrunnar (ON) sem verið er að setja upp víða um land. Auk þess er hægt að hlaða bílinn með 3ja fasa heimahleðslustöð á tveimur og hálfri klukkustund.

Í tilefni kynningar BL á Zoe býður BL fría heimahleðslustöð að andvirði 110 þúsund króna með öllum seldum Zoe til aprílloka og á tilboðið einnig við um þá sem staðfesta kaup á sama tímabili.

BL kynnir Renault Zoe í vel búinni Intens útgáfu sem er með öllum helsta öryggisbúnaði Renault sem aflaði bílnum 5 stjarna í öryggisprófunum EuroNCAP. Meðal staðalbúnaðar er sjálfvirkur hitastillir sem hitar bílinni upp að morgni áður en lagt er af stað út í umferðina, 16 álfelgur, LED dagljós og sjálfvirk hækkun og lækkun aðalljósa, regnskynjari á rúðuþurrkum, bakkmyndavél og R-link marmiðlunarbúnaður með 7“ snertiskjá og Bluetooth streymi fyrir síma og tónlist. Í þessari útfærslu kostar Renaut Zoe Intens 3.690.000 krónur. Bíllinn er einnig hægt að fá í BOSE-útgáfu með fullkomnu hljómkerfi og leðursætum.

mbl.is