BMW 5-Series stallbakur kynntur

Alls býður BL upp átta mismunandi útgáfur af BMW 5-Series …
Alls býður BL upp átta mismunandi útgáfur af BMW 5-Series bílnum.

Á morgun, laugardag milli klukkan 12 og 16, kynnir BL sjöundu kynslóð 5-Series Sedan, sem aldrei hefur verið glæsilegri og jafn vel útbúin og nú, að því er segir í tilkynningu um sýninguna.

Fimm-línan frá BMW hefur frá upphafi verið ein vinsælasta og mest selda fjölskyldu- og viðskiptalúxusbifreið veraldar, allt frá því að BMW 528 kom fyrst fram árið 1972.

Bíllinn var fyrst kynntur á bílasýningum seint á síðasta ári og fóru fyrstu bílarnir á Evrópumarkað núna í febrúar. 

Alls býður BL upp á átta mismunandi útgáfur af BMW 5-Series. Á kynningunni við Sævarhöfða á morgun verður sérvalin útgáfa af 520d Sedan tilbúin til reynsluaksturs fyrir áhugasama gesti, en bílinn setti BMW í Þýskalandi saman og sendi til landsins. Reynsluakstursbíllinn er búinn öllu því besta sem BMW býður upp á í þessum flokki.

Í sýningarsalnum verður svo fjórhjóladrifna útgáfan 530d Xdrive til sýnis þar sem gestir geta mátað sig við farþegarýmið og ráðfært sig við söluráðgjafa. Bíllinn í salnum er með átta gíra Steptronic sjálfskiptingu við þriggja lítra 265 hestafla dísilvél sem eyðir aðeins um 5 lítrum að meðaltali á hverja 100 ekna km. Í þeirri útfærslu kostar hann 9.690 þúsundir króna hjá BL.

mbl.is