Nýr og breyttur Discovery kynntur

Nýr og breyttur Land Rover Discovery verður kynntur hjá BL …
Nýr og breyttur Land Rover Discovery verður kynntur hjá BL á laugardag, 1. apríl.

BL kynnir á laugardag milli kl. 12 og 16 nýjan Land Rover Discovery sem er hæfari og öflugri en nokkru sinni fyrr. Er Discovery nú í fyrsta sinn með yfirbyggingu úr áli sem gerir hann 490 kg léttari en eldri gerð.

Hæfni við erfiðar aðstæður hefur verið aukin með endurbættu Terrain Response drifkerfi og loftpúðafjöðrun sem gerir ökumanni kleift að hækka bílinn upp og ná allt að 28,3 cm veghæð og 90 cm vaðhæð sem er alger sérstaða í þessum flokki bíla,“ að því er segir í tilkynningu um sýninguna.

Nýr Disvovery er einn öflugasti jeppinn frá Land Rover til þessa og er jafnframt búinn meiri búnaði og þægindum en fyrri kynslóð. Sumir segja að á því sviði sé hann farinn að standa nokkuð upp í hárinu á Range Rover.  Í Discovery er nú einnig boðið upp á nýja þriggja lítra SDV6 dísilvél sem er bæði öflugri og sparneytnari en fyrri vél og eyðir hún frá aðeins 7,2 lítrum á hundraði í blönduðum akstri.

Hátt og lágt drif er staðalbúnaður í SDV4 og TDV6 gerðunum. Auk ríkulegs staðalbúnaðar er hægt að fá sæti fyrir 7 manns. Innréttingin hefur verið endurhönnuð frá grunni.

Nýr Discovery kostar frá 9.190 þúsundum króna. Í þeirri útfærslu er Discovery sjálfskiptur með 2,0 lítra Td4 180 hestafla Ingenium-dísilvél með um 10 sekúndna hröðun í 100 km/klst. Vélin eyðir aðeins frá 6,2 lítrum að meðaltali.

BL býður Discovery í fjölmörgum útgáfum í samræmi við val kaupenda. Þar á meðal er Discovery HSE Luxury sem er með 3ja lítra 258 hestafla dísilvél. Í þeirri útfærslu kostar bíllinn 13.590 þúsundir króna. Allar gerðir Disvovery eru búnar mjög miklum staðal- og þægindabúnaði eins og hægt er að kynna sér á heimasíðu BL.

mbl.is