Innkalla vörubíla frá Mercedes-Benz

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju varðandi innköllun á Mercedes-Benz vörubílum. Um er að ræða gerðirnar Axor Econic, Actros, Antos og Arocs.

Ástæða innköllunarinnar er sú að möguleiki er fyrir því að bolti utan á gírkassa gæti losnað. Ef það gerist verður ekki hægt að skipta um gíra.

Viðkomandi bifreiðareigendur munu fá sent bréf vegna þessarar innköllunar á næstu dögum, að því er segir á vef Neytendastofu.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við Bílaumboðið Öskju.

mbl.is