Innkalla Ford Kuga

Brimborg ehf. hefur innkallað bifreiðar af gerðinni Ford Kuga sem voru framleiddar á milli 2012 og 2014. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að hljóðeinangrun innan á B-pósti við beltastrekkjara geti ofhitnað ef bifreiðin lendir í árekstri.

Þetta kemur fram á vef Neytendastofu.

Brimborg mun senda eigendum viðkomandi bifreiða bréf vegna þessa, en viðgerðin felst í að skipta um hljóðeinangrun. 

Neytendastofa hvetur fólk til að fylgjast vel með og hafa samband við Brimborg ef það á bíla af þessari tegund.

mbl.is