Play flýgur fótboltabullum til Wales

Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play.
Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play. Ljósmynd/Bernhard Kristinn

Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á ferðum til borgarinnar Cardiff í Wales. Þetta gerir PLAY vegna mikils áhuga stuðningsmanna á leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Wales í Þjóðadeildinni sem fara fram næsta haust. 

„Það er virkilega gaman að geta tekið þátt í því að fljúga stuðningsmönnum á þessa mikilvægu leiki Íslands í Þjóðadeildinni. Liðið er uppfullt af hæfileikum eins og við sáum í undankeppninni fyrir Evrópumótið þar sem munaði litlu að liðið tryggði sér sæti í aðalkeppninni. Framtíðin er björt fyrir íslenska landsliðið og því er hér um að ræða frábært tækifæri til að fylgja liðinu eftir til Cardiff. Að sama skapi sjáum við mikinn áhuga frá íbúum Cardiff að heimsækja Ísland, þannig að það má búast við miklu lífi og fjöri í kringum þessa leiki,” segir Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play en íslenska landsliðið mætir liði Wales á Laugardalsvelli 11. október og svo fer næsti leikur þeirra fram á heimavelli Wales í Cardiff 19. nóvember. 

Play ætlar að fljúga til Cardiff í sex vikur, eða á milli leikja Íslands og Wales. Fyrsta flugið verður 10. október og það síðasta 20. nóvember. Áætlun í fyrstu og síðustu vikunni verður sniðin eftir leikjum Íslands og Wales en á milli þess verður flogið á mánudögum og föstudögum. 

Cardiff er höfuðborg Wales og því iðandi af mannlífi. Þar er hægt að gera sér glaðan dag í miðborginni og mun fjöldi verslana einnig vekja athygli margra. Þá er Cardiff-kastali mikið aðdráttarafl fyrir gesti sem og árbakki Cardiff-flóa sem laðar marga að. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert