Sinnir ekki börnunum á nóttunni

Jenna Michele vill halda sér í formi og hluti af …
Jenna Michele vill halda sér í formi og hluti af því er að sinna engum börnum á nóttunni. Skjáskot/Instagram

Jenna Michele segist ekki sinna börnum sínum á nóttunni. Hún segir mikilvægt að hún fái fullan nætursvefn og hefur barnfóstru sem tekur næturvaktir.

Michele kallar sig á samfélagsmiðlum „The Real Houswife of Chicago“ og borgar um 600 pund á viku fyrir næturfóstru eða um 100 þúsund krónur. 

„Ég „blokka“ barnið til klukkan sjö á morgnana. Þarfir fólks eru ólíkar og maður verður að gera það sem virkar fyrir mann sjálfan,“ segir Michele á TikTok. 

Michele er heimavinnandi húsmóðir en vinnur engin húsverk. Hún segir það vera fullt starf að halda sér fallegri og í formi fyrir eiginmanninn. Hluti af þeirri vinnu er að fá góðan nætursvefn og þess vegna réð hún barnfóstru til að sjá um börnin á nóttunni.

„Ég veit ekki hvernig maður skilgreinir húsmóðurstarfið en ég segi bara þetta: Ég skrifaði undir kaupmála þar sem tekið er fram að eiginmaðurinn skaffar tekjurnar og ég held mér fallegri,“ segir Michele.

„Ég fer í ræktina alla morgna, en þetta er það sem húsmæður gera. Svo fer ég á snyrtistofu og læt laga á mér augabrýrnar og vaxa efri vörina. Ég verð að gera þetta, en ég tek skilyrði kaupmálans mjög alvarlega.“



Hjónin giftu sig og hún lofaði að halda sér unglegri.
Hjónin giftu sig og hún lofaði að halda sér unglegri. Skjáskot/Instagram
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert