Hljómsveitin Sigur Rós mun ásamt Amiinu leika á fríum tónleikum á Klambratúni í kvöld sem hefjast kl. 20.30 og er búist við allt að 15.000 áhorfendum. Tónleikahaldarar vilja benda fólki á að nota eftirfarandi bílastæði, sem verða til afnota fyrir tónleikagesti og að fjölmenna í bíla þar sem ekki eru nein bílastæði önnur nær Klambratúni.
Bílastæðin eru hjá Kringlunni, Perlunni, Austurbæjarskóla, Iðnskólanum í Reykjavík, Háteigskirkju, Stýrimannaskólanum, Ísakskóla og við Valsheimilið. Um fimm mínútna gangur ætti að vera á tónleikana frá þessum bílastæðum.