Breska sjónvarpsstöðin Channel 4 tilkynnti í dag að hætt hefði verið við sýningar á kynlífsþáttum um sjálfsfróun, undir yfirskriftinni Wank Week. Channel 4 hefur sætt harðri gagnrýni undanfarið fyrir sýningar á raunveruleikaþættinum Celebrity Big Brother, þar sem keppendur hafa verið sakaðir um kynþáttahatur í garð eins keppenda, Bollywood-stjörnunnar Shilpa Shetty.
Channel 4 hafði í hyggju að sýna kynlífsefnið seint að kvöldi í eina viku og kynnti til sögunnar „sjálfsfróunarmaraþon“ í Lundúnum. Talsmaður stöðvarinnar segir kynlífsþættina bíða betri tíma. Kynþáttaníðið í Celebrity Big Brother hefur vakið heimsathygli, var m.a. rætt á breska þinginu og borgarstjóri Lundúna, Ken Livingstone, sakaði stöðina um að sýna viljandi efni með kynþáttahatri.
Channel 4 vill fá hluta af þeirri fjárhæð sem Bretar borga í afnotagjöld ríkissjónvarpsins BBC, til að geta hafið stafrænar útsendingar.