8,3 milljóna króna brúðarskart Elísabetar Hurley

Elísabet og Arun með son hennar í Jodhpur á Indlandi …
Elísabet og Arun með son hennar í Jodhpur á Indlandi á laugardaginn. Reuters

Þegar Elísabet Hurley giftist Arun Nayar við athöfn að hindúasið á Indlandi á laugardaginn var hún í brúðarskarti samtals að verðmæti rúmlega 8,3 milljónir íslenskra króna.

Ekki hafa borist neinar myndir af henni í herlegheitunum þar sem tímaritið Hello fékk keyptan einkarétt á birtingu allra mynda frá athöfninni. Herma fregnir að tímaritið hafi greitt yfir eina milljón punda, eða 130 milljónir króna, fyrir einkaréttinn á myndunum.

Elísabet var til dæmis í demantaskreyttum sarí, sem kostaði rúma hálfa milljón króna, með fimm milljóna króna eyrnalokka og 2,5 milljóna króna armband. Hendur hennar vor skreyttir með hefðbundnum henna-lit, sem kostaði reyndar ekki nema rúman sexhundruðkall.

Skrautklæði brúðgumans, frakki og túrban, kostuðu ekki nema rúm 600 þúsund.

Fregnir herma að brúðhjónin hafi flogið til Maldíveyja í brúðkaupsferð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson