Loksins marktækur listi um vinsælustu lögin

Eiríkur Hauksson syngur annað vinsælasta lag landsins samkvæmt listanum sem …
Eiríkur Hauksson syngur annað vinsælasta lag landsins samkvæmt listanum sem birtur er í Morgunblaðinu í dag. mbl.is/Eggert

Breski tónlistarmaðurinn Mika á vinsælasta lagið á Íslandi núna samkvæmt nýjum lista sem birtur er í Morgunblaðinu í dag. Listinn, sem framvegis verður birtur á fimmtudögum, er unninn af Félagi hljómplötuframleiðenda.

„Við fáum 40 mest spiluðu lögin frá fjórum útvarpsstöðvum, Rás 2, Bylgjunni, FM957 og X-inu og svo tökum við söluna á tónlist.is líka inn í þetta. Við förum eftir hlustun á þessar stöðvar og hækkum vægi þeirra samkvæmt hlustuninni. Rás 2 og Bylgjan eru með mesta vægið, næst er FM og svo X-ið og tónlist.is," segir Jónatan Garðarsson, framkvæmdastjóri Félags hljómplötuframleiðenda.

„Við erum sannfærðir um að þetta sé eins nálægt því og við komumst að vera með sannfærandi lista. Það hefur verið talað um að framkvæma þetta í mörg ár en aldrei verið hægt að gera þetta almennilega fyrr en nú," segir Jónatan, og bætir við að segja megi að um marktækasta lagalista á Íslandi sé að ræða.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt öllum líki ekki málflutningur þinn þýðir það ekki að þú eigir að þegja. Njóttu þess að vera með fjölskyldunni í kvöld.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt öllum líki ekki málflutningur þinn þýðir það ekki að þú eigir að þegja. Njóttu þess að vera með fjölskyldunni í kvöld.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav
Loka