Britney sögð borga fólki fyrir að vera vinir sínir

Britney Spears.
Britney Spears. AP

Britney Spears bað barnfóstru að sofa í rúmi með sér og syni sínum, Sean Preston, vegna þess að hún var svo einmana, að því er hermt er. Umrædd barnfóstra er ekki lengur í vinnu hjá Britney, og aðrar fyrrverandi barnfóstrur hafa fullyrt að Britney hafi farið úr hverri spjör og drukkið áfengi að sonunum tveim ásjáandi.

Sean Preston er nú rétt tæplega tveggja ára, og Jayden James er 11 mánaða. Heimildamaður tímaritsins US Weekly sagði: „Áður en Britney eignaðist Jayden James í fyrra bað hún barnfóstruna að sofa í rúminu með sér og Sean Preston. Svo drekkur hún að börnunum ásjáandi. Til að byrja með hjálpaði drykkjan henni að slaka á og hafa hemil á reiðinni, en hún drakk alltaf of mikið og lognaðist útaf, og þá sáu barnfóstrurnar um börnin.“

Heimildamaðurinn sagði ennfremur að Britney fari úr öllum fötunum fyrir framan heimilishjálpina og barnfóstrurnar og hvern sem er. Hún spyrji alltaf hvort hún sé kynþokkafull og falleg. „Hún er afskaplega óörugg með sig. Hún borgar fólki fyrir að vera vinir sínir.“

Þessar fullyrðingar hafa komið í ljós eftir að fyrrverandi eiginmaður Britneyjar, Kevin Federline, fór að safna upplýsingum frá fyrrverandi starfsfólki og birta því stefnur í baráttu sinni fyrir forræði yfir drengjunum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson