Alma í Nylon heldur sjálfstyrkingarnámskeið

Alma Guðmundsdóttir.
Alma Guðmundsdóttir.
Eftir Halldóru Þorsteinsdóttur - halldora@bladid.net
„Ég og Edda Björk Pétursdóttir, vinkona mín, fengum þessa hugmynd í byrjun sumars þegar við vorum að ræða um önnur námskeið og það hvað okkur finnst vanta í þessa flóru," segir söngkonan Alma Guðmundsdóttir, betur þekkt sem Alma í Nylon, aðspurð um fyrirhugað sjálfstyrkingarnámskeið fyrir stelpur á aldrinum 13 til 20 ára sem hefst þann 24. september næstkomandi.

„Okkur fannst vanta þennan faktor sem nýtist manni best daglega, þ.e.a.s framkoma, sjálfsöryggi og sjálfstraust. Þetta skiptir svo rosalega miklu máli í öllu sem við erum að gera. Ekki bara starfinu heldur daglegu lífi, hvort sem fólk er að sækja um vinnu eða stússast í sínum skyldum. Þetta kemur alltaf við sögu og við getum alltaf bætt okkur og byggt upp hvað þetta varðar. Það eru bara svo margir þættir sem spila saman í hverri manneskju. Til þess að hafa jafnvægi og líða vel vill maður hafa öryggi á sem flestum sviðum."

Á námskeiðinu verður farið í saumana á öllu er viðkemur framkomu, feimni, sjálfsáliti, líkamsburði, heilsu, förðun, sjálfsvörn, markmiðasetningu og fjármálum auk þess sem þátttakendum gefst kostur á að kynnast leikrænni tjáningu.

Kennt verður einu sinni í viku frá 24. september til 26. nóvember í eina og hálfa klukkustund í senn og verða valinkunnir einstaklingar með fræðsluerindi hverju sinni. Meðal þeirra eru Freyja Haraldsdóttir, Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, Yasmin Olsen, Agnar Jón Egilsson og Elín Káradóttir.

Nálgast má frekari upplýsingar og skráningu á heimasíðunni www.namskeid.com.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gættu þín á hleypidómum varðandi þá sem eru öðru vísi en þú. Taktu til þín það hól sem þú færð því þú átt það skilið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gættu þín á hleypidómum varðandi þá sem eru öðru vísi en þú. Taktu til þín það hól sem þú færð því þú átt það skilið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir