Hótar að hálshöggva Britney og Madonnu

AP

Madonna og Britney Spears verða gerðar höfðinu styttri ef þær halda áfram að útbreiða „menningu Satans,“segir leiðtogi íslamskra hryðjuverkamanna, Muhammad Abdel-Al. Þær stöllur verði teknar af lífi ef þær hætti ekki að haga sér eins og vændiskonur í því skyni að selja plötur.

Abdel-Al er leiðtogi palestínsks hryðjuverkahóps. Hann segir í nýrri bók: „Ef ég mæti þessum hórum á förnum vegi mun mér hlotnast sá heiður - ég endurtek, hlotnast sá heiður - að verða fyrstur manna til að gera Madonnu og Britney Spears höfðinu styttri, haldi þær áfram að útbreiða sína satanísku menningu til höfuðs íslam.“

Samtökin sem Abdel-Al leiðir hafa bækistöðvar á Gaza-svæðinu, og hafa gert fjölda eldflaugaárása á Ísrael.

Abdel-Al segist myndu vera reiðubúinn að þyrma lífi Madonnu og Britneyjar ef þær væru reiðubúnar að snúast til íslams, en neiti þær því verði þær teknar af lífi.

„Ef þær halda uppteknum hætti ... getum við grýtt þær eða drepið þær eins og okkur sýnist henta best, haldi þær áfram að freista manna til að fæla þá frá íslam. Vændiskonu ber að grýta eða hýða átta sinnum með belti ... Þær eru vitandi vits að útbreiða þessa menningu sem lið í stríði Bandaríkjamanna gegn Íslam.“

Í bókinni, sem rithöfundurinn Aaron Klein skrifaði, viðra nokkrir íslamskir öfgasinnar skoðanir sínar á því hvernig umhorfs yrði í Bandaríkjunum ef þar yrðu tekin upp sharia-lög, sem eru byggð á strangri túlkun á Kóraninum, helgiriti múslíma.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is