Kostar sitt að kyssa Richard Gere

Shilpa Shetty var stöðvuð á leið úr landi sökuð um …
Shilpa Shetty var stöðvuð á leið úr landi sökuð um klámfengið athæfi. Reuters

Richard Gere smellti kossi á indversku Bollywood-leikkonuna Shilpa Shetty í fjáröflunarsamkvæmi fyrir alnæmisjúklinga og fimm mánuðum síðar er kossinn frægi enn að valda henni vandræðum. Shetty var stöðvuð á flugvellinum í Mumbai því hún á enn yfir höfði sér kæru fyrir klámfengið athæfi.

Íhaldsamir harðlínu Hindúar mótmæltu kossaflensinu harðlega og töldu hann hafa brotið í bága við ströng lög gegn klámi.

Málið fór í gegnum dómskerfið og var því vísað frá í hæstarétti en það mun hafa gleymst að þurrka það út úr tölvukerfi vegabréfseftirlitsins og úr því þurfti að greiða er Shetty átti erindi úr landi fyrir skömmu.

Shetty sem er fræg á Indlandi vakti athygli á Vesturlöndum eftir að hún tók þátt í raunveruleikaþáttum í bresku sjónvarpi (Celebrity Big Brother)

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir þér grein fyrir að þú hefur ekki sagt allan sannleikann í spjalli við fólk. Farðu þér því hægt í málefnum hjartans og leyfðu huganum að vera með í spilinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir þér grein fyrir að þú hefur ekki sagt allan sannleikann í spjalli við fólk. Farðu þér því hægt í málefnum hjartans og leyfðu huganum að vera með í spilinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson