Lét 10 ára dóttur sína synda bundna á höndum og fótum

Huang Daosheng með Huang Li, 10 ára dóttur sína, eftir …
Huang Daosheng með Huang Li, 10 ára dóttur sína, eftir að hún synti bundin á höndum og fótum. AP

Kínverskur faðir batt hendur og fætur 10 ára dóttur sinnar og fylgdist síðan með henni synda í kaldri á í suðurhluta Kína í um þrjár stundir. Segist maðurinn vera að æfa dóttur sína svo hún geti látið þann draum sinn rætast, að synda yfir Ermarsundið.

Að sögn AP fréttastofunnar synti stúlkan, sem heitir Huang Li, eins og höfrungur og ýtti sér stundum áfram með samanbundnum höndunum. Hún synti 2-3 km vegalengd í fljótinu og fylgdi straumi þess.

„Hún er flugsynd og hún vildi gera þetta," sagði Huang Daosheng, faðir stúlkunnar, í símaviðtali. Hann sagði stúlkuna hafa fengið hugmyndina eftir að hafa séð sund af þessu tagi í sjónvarpsþætti.

Faðirinn, sem er kennari, sagðist þjálfa dóttur sína sjálfur vegna þess að hann hefði ekki efni á að ráða sundþjálfara. Stúlkan byrjaði að synda þegar hún var 6 ára og á þann draum að synda yfir Ermarsund.

„Hún spyr mig daglega: Get ég gert það? Er Ermarsundið breitt. Eru öldurnar stórar," sagði Huang Daosheng. Hann fullyrti að sundæfingarnar í fljótinu væru ekki hættulegar og hann hefði sjálfur synt með dóttur sinni.

Mikill íþróttaáhugi hefur gripið Kínverja vegna ólympíuleikanna, sem verða í Peking á næsta ári. Í sumar komst 8 ára gömul kínversk stúlka í heimsfréttirnar þegar hún hljóp 3560 km vegalengd á 55 dögum og faðir hennar fylgdi henni eftir á skellinöðru.

Huang Li á sundi með hendur bundnar aftan við bak.
Huang Li á sundi með hendur bundnar aftan við bak. AP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú geislar af hamingju og hefur jákvæð áhrif á umhverfi þitt. Láttu freistingar lönd og leið og líttu ekki upp fyrr en þú hefur lokið því sem fyrir liggur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú geislar af hamingju og hefur jákvæð áhrif á umhverfi þitt. Láttu freistingar lönd og leið og líttu ekki upp fyrr en þú hefur lokið því sem fyrir liggur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg