Langar að sjá norðurljósin

Breska söngkonan Katie Melua er stödd hér á landi til að kynna nýjustu plötu sína, Pictures, sem kom út í síðasta mánuði. Katie hefur rokið upp á stjörnuhimininn á síðustu árum og var söluhæsta evrópska söngkonan í fyrra.

„Það spyrja mig allir af hverju ég sé á Íslandi, það sé svo lítill markaður, en í sannleika sagt þá skiptir það ekki máli. Ég er hjá litlum útgefanda og þar sem tími gafst til að koma þá langaði mig til að heimsækja landið aftur, þar sem ég naut mín svo síðast þegar ég kom hingað í febrúar að spila," segir Katie sem mun þó ekki halda neina tónleika að þessu sinni. „Því miður ekki núna, en ég kem pottþétt aftur, því mig langar svo að fara í rafting hérna. Þá langar mig líka til að sjá meira af landinu. Síðast fór ég í Bláa Lónið sem var æði og ég gerði tilraun til þess að sjá norðurljósin, en því miður voru ekki skilyrði til þess þá. Ég fer heim strax í dag og hef því ekki tíma til að gera neitt spennandi, því miður," andvarpaði Katie og virtist þreytt eftir flugið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gættu þín á hleypidómum varðandi þá sem eru öðru vísi en þú. Taktu til þín það hól sem þú færð því þú átt það skilið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gættu þín á hleypidómum varðandi þá sem eru öðru vísi en þú. Taktu til þín það hól sem þú færð því þú átt það skilið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir