Myndband af Britney á rauðu lagt fram í rétti

AP

Myndband sem sýnir Britney Spears aka yfir gatnamót á rauðu ljósi með börnin sín í bílnum var lagt fram í rétti í Los Angeles í gær, en myndbandið var birt á vefnum fyrir viku. Ekki liggur fyrir hvort það mun hafa áhrif á niðurstöðu forræðisdeilu Britneyjar og Kevins Federlines.

Málið verður tekið fyrir í réttinum á ný 26. nóvember. Federline hefur nú tímabundið forræði yfir sonum þeirra tveim, Sean Preston, sem er tveggja ára, og Jayden James, sem er eins árs.

Myndbandið var birt á slúðurfréttavefnum TMZ.com í síðustu viku. Á því má sjá Britneyju aka yfir gatnamót í Hollywood Hills og taka vinstribeygju í veg fyrir bíla sem koma úr gagnstæðri átt.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er sannleikskorn í því að hálfnað er verk þá hafið er. Þú kemur miklu í verk í dag og nýtur góðs af styrk annarra.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er sannleikskorn í því að hálfnað er verk þá hafið er. Þú kemur miklu í verk í dag og nýtur góðs af styrk annarra.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir