Veröld/Fólk
|
1 Fólk - fréttir
| mbl
| 25.1.2008
| 10:34
Tommy Lee alsæll á Egilsstöðum
Bandaríski rokkarinn Tommy Lee er einn þeirra fjölmörgu farþega flugvélar Icelandair sem kom frá New York snemma í morgun og lenti á Egilsstöðum. Að sögn Jóns Atla Helgasonar, hjá fyrirtækinu Jóni Jónssyni sem stendur að tónleikum Lee á Nasa í kvöld, er von á Lee til Reykjavíkur um hádegið en rokkarinn er að sögn í miklu stuði og alsæll á Egilsstöðum. Segir Jón Atli að Tommy Lee hafi þegar farið að leita að Magna Ásgeirssyni enda staddur skammt frá fæðingarbæ hans.
Í kvöld heldur Tommy Lee tónleika á Nasa við Austurvöll ásamt DJ Aero. Með þeim Lee og Aero í för er umboðsmaður Lee, auk hljóðmanns rokkarans sem mun einnig vera lífvörður hans.
Á tónleikunum í kvöld mun Lee spila á trommur undir taktföstum skífuþeytingum DJ Aero.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









