Áfram nekt á sunnudögum

Christina Aguilera
Christina Aguilera Reuters

Söngkonan Christina Aguilera ætlar ekki að láta nýfæddan son sinn koma í veg fyrir að hún eyði sunnudögum án klæða með eiginmanninum. Aguilera og eiginmaður hennar,  Jordan Bratman, eignuðust sitt fyrsta barn, Max Liron, þann 12. janúar sl.

„Þegar kemur að notalegum hlutum eins og nöktum sunnudögum þá tel ég mikilvægt fyrir mig og Jordan að halda okkar striki. Auðvitað krefjast börn mikillar athygli og tíma en við teljum að það sé mjög mikilvægt fyrir mömmu og pabba að eiga áfram sínar stundir," segir söngkonan.


Á síðasta ári greindi Christina frá því að hún og Jordan ýttu undir ástareldinn með því að eyða heilum degi í viku nakin. „Við hljótum að vera notalegasta par í heimi. Við eigum okkar stund saman sem við köllum sunnudagur án klæða. Á sunnudögum förum við ekki út heldur höfum það notalegt heima. Við gerum allt án klæða. Við eldum nakin. Það er mikilvægt að halda lífi í hjónabandinu og krydda það aðeins," sagði söngkonan.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson