Teiknimyndirnar um Simpson-fjölskylduna sjást ekki lengur á skjánum í Venesúela. Innihald þáttanna þykir ekki lengur boðlegt í morgunsjónvarpinu eða skilaboðin sem send eru áhorfendum um samskipti foreldra og barna. Útvarpsráðið þar í landi stöðvaði því sýningar þáttanna.
Sagt er að margir hafi mótmælt boðskapnum sem birtist í sögunum um Hómer og hans fólk og var fjölskyldunni gulu því úthýst. Í staðinn birtast rauð klæðlítil baðföt á skjánum, því þáttaröðin Baywatch Hawaii er sýnd á sama tíma og Simpson-fjölskyldan áður.
Endursýningar á gömlum bandarískum og suðuramerískum sjónvarpsseríum njóta hylli í Venesúela en vinsælasti sjónvarpsþátturinn er þó spjallþáttur Hugos Chavez, forseta landsins.