Árleg vorhátíð stendur nú yfir í Hastings á Englandi. Hátíðin, sem kennd er við græna risann, Jack In The Green, á rætur að rekja allt til 17. aldar en var endurvakin á áttunda áratug síðustu aldar.
Í Hastings klæða margir borgarbúar sig í grímubúninga og ganga gegnum bæinn. Í lokin er Jack hinn græni lagður að velli með táknrænum hætti.