Evróvisjón grínmynd

Eurobandið og allir sem að því koma eftir lokaæfinguna í gær. stækka

Eurobandið og allir sem að því koma eftir lokaæfinguna í gær. mbl.is/Dagur

mbl.is Dagur Gunnarsson skrifar frá Belgrad

Lokaundirbúningurinn fyrir seinni forkeppnina í Beogradska Arena stendur nú yfir og keppendur landanna 19 sem koma fram í kvöld eru væntanlega að róa taugarnar með einum eða öðrum hætti. Frést hefur að Working Title breska kvikmyndafyrirtækið hyggist framleiða grínmynd sem byggi á Evróvisjón.

Workin Title hefur gert myndir á borð við Four Weddings And A funeral, Hot Fuzz, Atonement og fleiri gæðamyndir. Fyrirtækið mun hafa gert samning við aðstandendur keppninnar um að fá að nota umgjörð keppninnar í grínmynd.

Eurobandið  hitti keppendur frá Noregi og Finnlandi í garðveislu í gær og er stemmningin eftir lokaæfinguna í Beogradska höllinni bara góð.

Tveir dansarar í reykpásu brugðu á leik fyrir ljósmyndarann.

Tveir dansarar í reykpásu brugðu á leik fyrir ljósmyndarann. mbl.is/Dagur

Myndasyrpa: Eurovision

Birtingardagur: Fimmtudaginn, 22. maí 2008

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is