Madonna að skilja?

Madonna með börnum sínum Lourdes, Rocco og David.
Madonna með börnum sínum Lourdes, Rocco og David. HO

Staðhæft er í breskum fjölmiðlum að söngkonan Madonna og eiginmaður hennar breski kvikmyndaleikstjórinn Guy Ritchie hafi ákveðið að skilja.

Eru hjónin, sem hafa verið gift í sjö ár, sögð hafa ákveðið að gera þetta opinbert eftir fyrirhugaða tónleikaferð hennar ‘Sticky and Sweet’ sem lýkur í Mexíkó þann 29. nóvember. „Þrátt fyrir að hjónabandinu sé lokið munu þau ekki tjá sig um það fyrr en að tónleikaferðinni lokinni,” segir ónefndur heimildarmaður breska blaðsins Daily Mirror.

„Þau eru eins og systkini fremur en hjón og telja því best að binda enda á  hjónabandið. Það hafa verið uppi sögusagnir um hávaðasöm rifrildi en þau hafa einfaldlega fjarlægst hvort annað. Þau hafa komist að þeirri niðurstöðu að betra sé fyrir þau að vera bara vinir. Það er sorglegt en þau eru staðráðin í að skilja í vinsemd.”

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson