Um 12.000 aðdáendur Eric Claptons eru samankomnir í Egilshöll þar sem breski rokkarinn heldur nú tónleika. Clapton steig á svið á slaginu 21 og hóf tónleikana á því að leika þekkta blússlagara. Góð stemning er í höllinni að sögn þeirra tónleikagesta sem mbl.is hefur rætt við.
Clapton kom hingað frá Bergen í Noregi þar sem hann var með tónleika á miðvikudaginn. Héðan fer hann svo til Skanderborg í Danmörku þar sem hann heldur tónleika á sunnudaginn.
Að sögn lögreglu voru um 11.900 manns mættir í húsið kl. 21. Hún segir að allt hafi farið vel fram.