Tvennir tónleikar sama kvöldið

Hörður Torfason í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi.
Hörður Torfason í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi. mbl.is/Eggert

Hörður Torfason hélt árlega hausttónleika sína í gærkvöldi í Borgarleikhúsinu. Þetta er  33. árið í röð sem tónleikarnir fara fram en nokkrir þeirra hafa farið fram erlendis. Miðar á tónleikana seldust upp  á fáeinum dögum og því var bætt við aukatónleikum síðar um kvöldið.

Hörður sagði við 24 stundir í gær, að  aldrei hafi komið til greina að fella niður tónleika þó svo að nokkrir þeirra hafi farið fram erlendis. „Að vísu var ég landflótta í nokkur ár en þá hélt ég tónleikana bara í Kaupmannahöfn.“

Hann sagði einnig margt hafa breyst á áratugunum þremur. „Fyrir 33 árum átti ég einn lítinn gítar, ekkert söngkerfi og ég var í því alveg til 1987-1988, þá eignaðist ég peninga til að kaupa mér betri gítar og söngkerfi. Svo er ég náttúrlega orðinn mun viðurkenndari í dag heldur en ég var fyrir 33 árum. Þá vildi fólk nú helst ekki koma á tónleika með mér.“

Hörður hélt tvenna tónleika fyrir fullu húsi í Borgarleikhúsinu í …
Hörður hélt tvenna tónleika fyrir fullu húsi í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi. mbl.is/Eggert
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Varastu að gera nokkuð það sem getur valdið misskilningi um fyrirætlanir þínar. Aðeins vel upplýstur maður getur innt þau störf af hendi, sem þér eru falin.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Varastu að gera nokkuð það sem getur valdið misskilningi um fyrirætlanir þínar. Aðeins vel upplýstur maður getur innt þau störf af hendi, sem þér eru falin.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg