Bubbi hefur gert betur en á Konu

Bubbi Morthens
Bubbi Morthens mbl.is/Árni Sæberg

„Bubbi hefur gert betur en á Konu," segir Ólafur Páll Gunnarsson útvarpsmaður og einn af helstu aðdáendum Bubba Morthens í grein Arnars Eggerts Thoroddsen í Lesbók Morgunblaðsins á morgun um ofmetnustu plötur íslenskrar tónlistarsögu.

Fleiri plötur Bubba eru nefndar í óformlegri könnun Arnars Eggerts. Jens Guðmundsson, poppfræðingur og bloggari, segir að Ísbjarnarblús haldi illa vatni: „Laglínur eru lítilfjörlegar. Margir textarnir eru þunnir. „Stál og hnífur" er dæmi um illa ortan texta."

Lifun eftir Trúbrot er nefnd og sömuleiðis Hana nú eftir Vilhjálm Vilhjálmsson og plötur yngri tónlistarmanna sleppa ekki, jafnvel ekki Sigur Rós, svigaplatan er sögð „hræðileg og eiginlega hlægileg".

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson