Katie með slæðu um magann

Það þykir stinga í stúf að Katie Holmes skuli klæðast …
Það þykir stinga í stúf að Katie Holmes skuli klæðast víðum kjólum. Reuters

Kvikmyndaleikkonan Katie Holmes er nú sögð bera annað barn sitt og eiginmanns síns Tom Cruise undir belti en fyrir eiga þau tveggja ára dóttur. Munu sögusagnirnar hafa komist á kreik er til hennar sást í víðum kjól með slæðu bundna um mittið. 

„Katie virkaði geislaði og hamingjusöm og hún lagði hvað eftir annað verndandi hönd yfir maga sinn. Jafnvel þótt hún reyndi að fela það mátti greinilega sjá votta fyrir kúlu,” segir ónefndur heimildarmaður.

 Tom, sem einnig á tvö ættleidd börn með fyrri eiginkonu sinni Nicole Kidman, lýsti því nýlega yfir í blaðaviðtali að þau hygðu á frekari barneignir. „Við munum eignast fleiri börn. Það er bara ég sem segi þetta því Katie er ekki hér,” sagði hann. Þá segist hann hafa notið þess sérstaklega að upplifa það með Katie er hún eignaðist sitt fyrsta barn. „Þetta hefur verið sérstaklega yndislegt þar sem Kate hefur verið að upplifa það í fyrsta sinn. Ég hef verið umkringdur börnum allt mitt líf en það er öðruvísi þegar þau eru manns eigin. Það hefur verið töfrum líkast að upplifa það og Kate er svo yfirveguð og ástrík og Suri er alveg eins."
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson