MP3 spilarinn bjargaði

Tveir franskir skíðamenn í svissnesku ölpunum eiga MP3 spilaranum sínum að þakka, að þeir fundust í nótt eftir að hafa villst. Björgunarmenn komu auga á ljósið frá spilaranum þegar þeir leituðu mannanna tveggja.

Neyðarkall kom frá skíðamönnunum seint í gær en áður en náðist í þá kláraðist batteríið í símanum þeirra. Þyrluáhöfn fann svo mennina í bröttu skógarlendi laust eftir miðnætti í nótt eftir að hún kom auga á ljósið frá stafræna spilastokknum sem mennirnir höfðu meðferðis.

Mennirnir ofkældust einungis lítillega þrátt fyrir að hafa þurft að bíða í um 15 stiga frosti.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson