Twitter-æði rúllar af stað

Morgunblaðið /Árni Matthíasson

Fyrir fimm árum var enginn maður með mönnum nema að halda úti sinni eigin MySpace síðu. Þremur árum seinna höfðu margir skipt yfir í Facebook, enda fleiri möguleikar þar til að eyða tíma sínum í alls kyns leikjum eða sjálfsprófum auk þess sem auðveldara er að fylgjast með lífi annarra í gegnum fésbókina.

Nýjasta netæðið er vefsíðan twitter.com sem er tengslasíða er stólar eingöngu á svokölluð ör-blogg.

Þetta er því næsta skref textaboðs- tækninnar er menn tóku fyrst upp þegar stafræn tækni varð hluti af daglegu lífi mannsins. Þá með komu tölvupósta, sms-skilaboða eða msn-skilaboða.

Er þetta ekki eins og fésbókin?

Twitter virkar þannig að notandinn er beðinn um að svara einni einfaldri spurningu; „Hvað ertu að gera núna?“. Ætlast er til þess að þú sláir inn stutta lýsingu (hámark 140 slög) á því sem er í gangi hjá þér hverju sinni. Þannig getur þú leitað uppi þá notendur er þú vilt fá að fylgjast með eða fá upplýsingar af og sótt um að ör-bloggið þeirra birtist á þinni twitter-síðu. Fáir þú samþykki fer textinn þinn beint inn á síðu þeirra sekúndubrotum eftir að þú styður á enter-takkann.

Aðgerðin er í rauninni nákvæmlega sú sama og ástandsrákin (status bar) á Facebook býður upp á en virknin er þó önnur. Helsta ástæða þess er að á Twitter bjóða alls kyns stofnanir, tónlistarmenn, hljómsveitir, leikarar eða annað frægt fólk notendum að vera áskrifendur að ör-bloggum sínum. Þannig virkar Twitter sem skjót og skilvirk leið til þess að koma skilaboðum beint til þeirra er hafa áhuga á þér sem persónu eða því sem þú hefur upp á að bjóða.

Þarna er líka góð leið fyrir tónlistarfólk til þess að leyfa aðdáendum að fylgjast með því sem er í gangi hverju sinni. Margir tónlistarmenn eru duglegir við að senda inn ör-blogg, og þar á meðal nokkrir íslenskir. Hafa listamennirnir Björk, Ghostigital, Sprengjuhöllin, Sigur Rós, Amiina og Ólafur Arnalds öll kosið að nýta sér Twitter sem leið til að koma skilaboðum til aðdáenda sinna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú geislar af hamingju og hefur jákvæð áhrif á umhverfi þitt. Láttu freistingar lönd og leið og líttu ekki upp fyrr en þú hefur lokið því sem fyrir liggur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú geislar af hamingju og hefur jákvæð áhrif á umhverfi þitt. Láttu freistingar lönd og leið og líttu ekki upp fyrr en þú hefur lokið því sem fyrir liggur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg