Veröld/Fólk
|
1 Fólk - fréttir
| Morgunblaðið
| 6.4.2009
| 10:17
Fljúga litlu fiðrildin
Ballettskóli Eddu Scheving stóð fyrir nemendasýningu í Borgarleikhúsinu í gær. Dansarar framtíðarinnar stigu þar sín fyrstu spor fyrir framan troðfullt leikhús af mömmum, pöbbum, öfum og ömmum. Þátttakendur voru frá þriggja ára og upp í unglingsár og litlar mýs og fiðrildi lögðu undir sig sviðið. Áhorfendur voru skiljanlega afar móttækilegir fyrir sýningunni og mátti greina gleðitár á hvörmum sumra.
Myndasyrpa: Fljúga litlu fiðrildin
Birtingardagur: Mánudaginn, 6. apríl 2009
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









