Býður fræga dóttur til sölu

Rubina Ali fór með hlutverk stúlku að nafni Latika í Viltu vinna milljarð. stækka

Rubina Ali fór með hlutverk stúlku að nafni Latika í Viltu vinna milljarð. Reuters

Bláfátækur faðir hinnar níu ára gömlu leikkonu, Rubina Ali, sem fór með hlutverk í óskarsverðlaunamyndinni Viltu vinna milljarð, hefur nú boðið dóttur sína „til sölu" fyrir 200 þúsund pund eða um 47,5 milljónir króna.

Faðir Rubinu, Rafiq Qureshi, býr í einu af verstu fátækrahverfum Mumbai, hefur gert tilraun til að bjóða dóttur sína ólöglega til ættleiðingar, að því er fram kemur í frétt The Independent. Hann mun hafa sagt við mann, sem sagðist áhugasamur um ættleiðinguna, að fjölskyldan væri að hugsa um framtíð Rubinu.

„Við fengum ekkert út úr þessar kvikmynd," sagði Qureshi. „Þeir létu okkur fá svolítinn pening í byrjun en við höfum ekkert fengið síðan. Við fengum um 150 þúsund rúpíur (um 380 þúsund krónur). Þeir töluðu um að láta okkur fá hús en hafa bara talað um það."

Qureshi vísaði gestinum til mágs síns sem sagði honum að Rubina lifði ömurlegu lífi með stjúpmóður sinni. Oftast dveldi hún hjá sér það sem henni liði ekki vel heima við. „Ef þú hefur áhuga á að ættleiða hana getum við rætt það en foreldrar hennar vænta þess að fá almennilegar fébætur fyrir. Við erum að tala um 50 þúsund pund (um 9,5 milljónir króna) svo að þetta geti orðið." Síðan mun verðið hafa hækkað í 200 þúsund pund.

Bróðir hans, Mohiuddin, mun hafa sagt að barnið væri núna sérstakt. „Þetta er ekki venjulegt barn. Þetta er Óskarsbarn."

Í kvikmyndinni segir frá því hvernig einn af fátækustu mönnum Indlands vinnur indversku útgáfuna af sjónvarpsspurningakeppninni Viltu vinna milljarð. Kvikmyndin hefur halað inn yfir 35 milljörðum króna í aðgangseyri um allan heim.

Faðir Rubinu, Qureshi sagði að þrátt fyrir velgengni myndarinnar hafi fjölskyldan aðeins fengið lítið fé fyrir. „Líf okkar er alveg eins og því er lýst í myndinni. Ríkisstjórnin hjálpar okkur ekki. Við eigum ekkert. Við búum í einu herbergi þar sem sjö sofa á gólfinu. Ég þéna 380 - 570 krónur á dag. Ég verð því að huga að því hvað sé best fyrir mig, fjölskyldu mína og framtíð Rubinu."

Rubina ásamt föður sínum á flugvellinum í Mumbai í febrúar.

Rubina ásamt föður sínum á flugvellinum í Mumbai í febrúar. Reuters

Ásamt leikstjóra myndarinnar Danny Boyle og samleikara sínum Azharuddin Mohammed Ismail á Óskarsverðlaunahátíðinni í febrúar.

Ásamt leikstjóra myndarinnar Danny Boyle og samleikara sínum Azharuddin Mohammed Ismail á Óskarsverðlaunahátíðinni í febrúar. Reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is