Rihanna nakin á netinu?

Söngkonan Rihanna. stækka

Söngkonan Rihanna. Reuters

Nektarmyndir af bandarísku söngkonunni Rihanna berast nú manna í millum yfir Internetið. Raunar hefur ekki verið að staðfest að um Rihönnu sé að ræða en gárungarnir telja líklegt að svo sé. Sjö myndum hefur verið komið í umferð og má á þeim sjá ýmsa líkamshluta hennar.

Samkvæmt því sem slúðurmiðlar greina frá virðast allar sjö myndirnar teknar í sama baðherberginu. Á tveimur þeirra má greinilega sjá andlit Rihönnu. Myndirnar eru vistaðar á vefþjóni imagehaven.com og hefur útgefandi Rihönnu krafist þess að þær verði fjarlægðar. Þær má meðal annars nálgast í gegnum fréttavefinn Huffington Post.   

Söngkonan heitir réttu nafni Robyn Rihanna Fenty. Hún er 21 árs gömul og hefur verið mikið í fréttum að undanförnu vegna heimilisofbeldis af hálfu kærasta síns, söngvarans Chris Brown.

Frétt Huffington Post

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
cript>

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is