Trekkarar flykkjast í bíó

Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í Star Trek stækka

Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í Star Trek Reuters

Bandarískir kvikmyndahúsagestir tóku nýju Star Trek kvikmyndinni fagnandi um helgina en hún skilaði um 76,5 milljónum dala í kassann frumsýningarhelgina. Er það álíka fjárhæð og þær tíu Star Trek myndir hafa skilað samanlagt í kassann á frumsýningarhelgi.

Í Star Trk myndinni er forsögu einnar stórkostlegustu könnunarferðar mannkynssögunnar fylgt eftir. Uppvaxtar- og mótunarár James T. Kirk og áhafnar hans í Starfleet-skólanum eru þungamiðja myndarinnar sem kemur úr smiðju J.J. Abrams (Lost, Mission: Impossible III, Cloverfield). Leikstjóri myndarinnar er  J.J. Abrams og með helstu hlutverk fara: Chris Pine, Zachary Quinto, Eric Bana, Simon Pegg og Winona Ryder.

Fimm vinsælustu í kvikmyndahúsum vestanhafs um helgina: 



1. Star Trek, 76,5 milljónir dala

2.  X-Men Origins: Wolverine, 27 milljónir dala

3. Ghosts of Girlfriends Past, 10,45 milljónir dala

4.  Obsessed, 6,6 milljónir dala

5.  17 Again, 4,4 milljónir dala.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is