Veröld/Fólk
| mbl
| 16.5.2009
| 23:52
Ég hefði kosið Ísland
Alexander Rybak, Norðmaðurinn sem vann Evróvisjón söngvakeppnina í Moskvu í kvöld, sagði á blaðamannafundi eftir keppnina að hann hefði greitt íslenska laginu atkvæði ef hann hefði getað.
„Þótt Úkraína væri með besta lagið í keppninni þetta árið hefði ég greitt Íslandi atkvæði," sagði Rybak.
Hann sagði, að lögin sem enduðu í tíu efstu sætunum væru einföld og auðskilin. „Ég held að það hafi verið notuð formúla undanfarinn áratug sem engin ástæða er til að breyta."
Rybak er fæddur í Hvíta-Rússlandi en uppalinn í Noregi. Hann sagði á blaðamannafundinum, að sennilega hefði hann sigrað vegna þess að hann blandaði saman hvítrússneska treganum við norsku hamingjuna enda væru Norðmenn hamingjusamasta þjóð heims.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- Lokadagur leirmunasýningar
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
- Þórunn Erna bæjarlistamaður Garðabæjar
- Rauk út í miðri áheyrnarprufu
- UN Women styrktartónleikar á Gauknum
- „Erum ekkert að fara á taugum“
- Vona að Spánn sigri ekki
- Frost ekki bara á Fróni?
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Aldrei boðið á stefnumót
- Orðljótur í Cannes
- Hróaðu þig niður!









