„Þegar svona hópar koma til landsins eiga þeir enga peninga til að auglýsa,“ segir Erling Jóhannesson, einn aðstandenda Hafnarfjarðarleikhússins. Þar sýndi fjölþjóðlegi leikhópurinn Secondhand Women verkið Peningaumbreytir fyrir tvo áhorfendur í fyrradag.
Annar þeirra var gagnrýnandi Morgunblaðsins. Erling segir að sjálfstæðir leikhópar séu oftast komnir upp á náð og miskunn fjölmiðla um að koma sér á framfæri. Nú þegar kreppir að í þjóðfélaginu sé fátt um fína drætti í þeim efnum. Það hafi komið berlega í ljós á fimmtudagskvöldið.