Ný ungfrú Kalifornía sammála þeirri fyrri

Tami Farrell.
Tami Farrell. Reuters

Tami Farrell, ný fegurðardrottning Kaliforníu-ríkis í Bandaríkjunum hefur greint frá því að hún sé sammála Carrie Prejean, sem svipt var titlinum í gær, varðandi hjónabönd samkynhneigðra. Þetta kemur fram á fréttavef Sky.

Prejean hélt því fram fyrr á þessu ári að sú skoðun hennar að hjónaband ætti einungis að vera á milli karls og konu hefði kostað hana titilinn „ungfrú Bandaríkin". Prejean var svipt titlinum sem „ungfrú Kalifornía" í gær þar sem forsvarsmenn keppninnar segja hana ekki hafa staðið við samningsskilyrði.

Farrell sagði í sjónvarpsviðtali á Fox News sjónvarpsstöðinni í morgun að hún teldi einnig að hjónaband ætti einungis að vera á milli karls og konu. Hún bætti því þó við að hún teldi hvorki sig né aðra hafa rétt til að segja öðrum hverja þeir mættu eða mættu ekki að elska.

Þá sagðist hún telja að um mannréttindamál væri að ræða sem rétt væri að fela í hendur kjósenda. Þegar hún var beðin um að skýra það nánar sagði hún: „Veistu það að mér finnst fáránlegt að nú sé litið til fegurðardrottninga eftir svörum við þessu. Mér finnst þetta vera mikilvægt mál en ég lít ekki á það sem baráttumál mitt. Ég vil ekki að þetta valdi meiri deilum en það hefur þegar gert."

 Tami, sem áður  hefur borðið titilinn „Miss Teen USA", viðurkenndi í viðtalinu að á þeim tíma hafi hún oft bakað kökur handa Donald Trump, eiganda Ungfrú Kaliforniu keppninnar. „Ég bakaði handa honum smákökur og súkkulaðikökur," sagði hún. „Ég hef átt gott samstarf við herra Trump. Það er alltaf gott að hafa hann með sér í liði."
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir þér grein fyrir að þú hefur ekki sagt allan sannleikann í spjalli við fólk. Farðu þér því hægt í málefnum hjartans og leyfðu huganum að vera með í spilinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir þér grein fyrir að þú hefur ekki sagt allan sannleikann í spjalli við fólk. Farðu þér því hægt í málefnum hjartans og leyfðu huganum að vera með í spilinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson