Ágætis byrjun best allra

Sigur Rós er talin eiga bestu íslensku plötuna.
Sigur Rós er talin eiga bestu íslensku plötuna. mbl.is/hag

Vefsíðan tonlist.is og Rás 2 hafa undanfarið staðið fyrir valinu á 100 bestu plötum Íslandssögunnar, hvorki meira né minna.

Valið stóð á milli 485 íslenskra platna sem innihéldu frumútgefnar upptökur og uppfylltu hefðbundin skilyrði um að teljast breiðskífur eða LP plötur. Það var 100 manna dómnefnd, auk atkvæða frá almenningi, sem úrskurðaði hvaða 100 plötur þættu bestar í þessum hópi.

Í gær voru lokaniðurstöður svo kunngjörðar, Ágætis byrjun Sigur Rósar þótti besta plata Íslandssögunnar. Á hæla hennar fylgdu svo Lifun með Trúbroti og Á bleikum náttkjólum Megasar og Spilverks þjóðanna.

Samskonar listi 2001

Samskonar könnun var gerð uppúr aldamótum við útgáfu bókar Gunnars Lárusar Hjálmarssonar, Dr. Gunna, Eru ekki allir í stuði?

Þar voru valdar bestu plötur síðustu aldar og Ágætis byrjun kom sér fyrir í efsta sæti þess lista. Í næstu sætum voru Debut með Björk og Á bleikum náttkjólum.

Þrettán þeirra platna sem rötuðu á topp 20 árið 2001 er að finna á hinum nýja lista yfir 20 bestu plöturnar en þá komu að sjálfsögðu ekki til greina plötur sem komið höfðu út eftir aldamót. Fimm plötur á listanum nú komu út eftir árið 2001.

20 bestu plötur Íslandssögunnar

1. Ágætis byrjun - Sigur Rós

2. Lifun - Trúbrot

3. Á bleikum náttkjólum - Megas & Spilverk þjóðanna

4. Hinn íslenzki Þursaflokkur - Þursaflokkurinn

5. Sumar á Sýrlandi - Stuðmenn

6. Debut - Björk

7. Gling-Gló - Björk Guðmundsdóttir & Tríó Guðmundar Ingólfssonar

8. Ísbjarnarblús - Bubbi Morthens

9. Með suð í eyrum við spilum endalaust - Sigur Rós

10. Sturla - Spilverk þjóðanna

11. Me and Armini - Emilíana Torrini

12. Hana nú - Vilhjálmur Vilhjálmsson

13. Fisherman´s Woman - Emilíana Torrini

14. Life´s Too Good - Sykurmolarnir

15. Með allt á hreinu - Stuðmenn

16. Einu sinni var - Vísur úr Vísnabókinni - Björgvin Halldórsson og Gunnar Þórðarson

17. Lög unga fólksins - Hrekkjusvín

18. Kona - Bubbi Morthens

19. Mugimama is this monkeymusic - Mugison

20. Takk - Sigur Rós

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir