Nú hefur Jens Guðjónsson gullsmiður lagt starf sitt á hilluna vegna aldurs. Síðast vann hann með einkabarni sínu, Hansínu Jensdóttur, í Gullsmiðju Hansínu, Jens á Laugavegi 42. Gullsmiðjan er nú flutt í Dugguvogi 10. Jens lét gera lógómerki sitt um 1968 en það teiknaði svissnesk listakona sem vann á Íslandi á þeim tíma. Merkið gengur undir nafninu „Daman“ og hefur fylgt honum alla tíð síðan.
Jens hefur ánafnað einkabarni sínu „Dömunni“ og er það einkaleyfisvottað á Hansínu.
Jens gullsmiður hefur verið þekktur í áratugi fyrir gull- og silfurgripi sína.