Hræódýr í framleiðslu en malar gull

Oren Peli stækka

Oren Peli

Góð markaðssetning og mikið umtal skilaði framleiðendum hryllingsmyndarinnar Paranormal Activity 22 milljónum Bandaríkjadala í kassann um helgina en frá því myndin var frumsýnd nýverið hefur hún halað inn 62 milljónum dala sem er dágóð fjárhæð fyrir mynd sem kostaði 11 þúsund dali í framleiðslu.

Paranormal Activity var vinsælasta kvikmyndin vestanhafs um helgina öllum að óvörum en myndin hefur einungis verið sýnd í Norður-Ameríku hingað til.

Má segja að leikstjóri myndarinnar, Oren Peli, hafi þar með fetað í fótspor framleiðanda The Blair Witch Project sem sló heldur betur í gegn árið 1999.

Líkt og Blair Witch þá þykir Paranormal einföld og áhrifarík ef marka má skrif AFP fréttastofunnar. En það er ekki eins og myndin sé ný af nálinni þó hún hafi ekki ratað fyrr í kvikmyndahús fyrr en nú en tökur fóru fram árið 2006. 


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
Í gær, 20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames-ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
Í gær, 18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
Í gær, 19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
Í gær, 14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is