Aðdáendur mótmæla Jackson-mynd

Heilsu Michaels Jacksons hrakaði mjög áður en hann lést.
Heilsu Michaels Jacksons hrakaði mjög áður en hann lést. Reuters

Hópur aðdáenda Michaels Jacksons ætla að mótmæla frumsýningu nýrrar kvikmyndar þar sem fjallað er um síðustu vikurnar í lífi söngvarans. Adáendurnir halda því fram að í myndinni sé ekkert sýnt hvernig heilsa Jacksons fari versnandi.

Mótmælendurnir ætla m.a. að dreifa bæklingum þar sem myndin, sem heitir This Is It, verður frumsýnd. Síðastu tónleikaæfingar Jacksons, sem fram fóru í  Los Angeles í sumar, voru teknar upp og eru bútarnir notaðir í myndina.

Fámennur hópur dyggustu aðdáenda Jacksons segjast hafa með eigin augum hvernig heilsu popparans hafi hraka mikið, að því er fram kemur á fréttavef BBC.

„Nokkrum vikum áður en hann lést þá sáum við miklar breytingar á honum,“ segir Talin Shajanian, sem býr í Los Angeles. Hún er ein af þeim fjölmörgu sem biðu fyrir utan tónleikahöllina þar sem Jackson bjó sig undir tónleikaröð sína í O2 höllinni í London.

Hún hefur fylgt Jackson eftir frá árinu 2003 og segist hafa áunnið sér traust hans. Hún ásamt nokkrum öðrum aðdáendum hafi reglulega hitt og rætt við popparann.

Fjölmargir aðdáendur Jacksons bíða eflaust spenntir að sjá myndina This …
Fjölmargir aðdáendur Jacksons bíða eflaust spenntir að sjá myndina This Is it. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er engin ástæða til þess að láta hugfallast, þótt allt gangi ekki samkvæmt áætlun. Málið er bara að halda ró sinni, hvað sem á dynur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er engin ástæða til þess að láta hugfallast, þótt allt gangi ekki samkvæmt áætlun. Málið er bara að halda ró sinni, hvað sem á dynur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav