Netverjar hella sér yfir Tiger

Netverjar virðast ekki halda aftur af sér þegar þeir taka þátt í umræðum á opinberum vef bandaríska kylfingsins Tigers Woods. Þar eru Tiger ekki vandaðar kveðjurnar fyrir að eiga í ástarsambandi við konur þótt hann sé giftur og tveggja barna faðir.

„Þú ert viðbjóðslegt SVÍN! ...þú átt ekki skilið að eiga börnin þín... Þú ert tákn fyrir allt sem er að heiminum í dag. Hvernig getur þú horfst í augu við börnin þín aftur og liðið eins og góðum föður?" spyr einn.

Annar segir: „Þú hefur orðið að athlægi - enn einn hrokafullur íþróttamaður sem heldur að hann komist upp með allt... Ímynd þín var tóm svik."

Breska Sky fréttastofan hefur eftir sérfræðingum að það sé óskiljanlegt að umboðsmenn Tigers, fyrirtækið International Management Group, hafi ekki yfirfarið vefinn og fjarlægt fúkyrðaflauminn af vefsvæðinu. 

„Bandaríkjamenn elska það þegar háir herrar falla af stalli en þeir elska líka þá sem rísa upp á ný," segir bandaríski íþróttaumboðsmaðurinn Leigh Steinberg við Sky.

„Hann þarf að bera fram  opinbera afsökunarbeiðni svo sárin geti farið að gróa og hann geti horft fram á veginn, annars mun þetta mál gleypa hann lifandi."

Spjallborðið á vef Tigers 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gættu þín á hleypidómum varðandi þá sem eru öðru vísi en þú. Taktu til þín það hól sem þú færð því þú átt það skilið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gættu þín á hleypidómum varðandi þá sem eru öðru vísi en þú. Taktu til þín það hól sem þú færð því þú átt það skilið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir